25.6.2008 | 19:03
Í Gent...
Núna er ég búin að vera sex daga hjá Hallveigu dóttur minni og við erum búnar að ganga mikið (og stundum hlaupa) um þessa gömlu fallegu borg. Við erum búnar að skoða gamlar kirkjur, kastala og kíkja inn á nokkrar listasýningar, nú og smakka á hinu fræga Belgíska súkkulaði (...það er hættulega gott).
Í gærkvöldi fengum við upphringingu frá Ágústi Inga þar sem hann tjáði okkur að sonur hans, Ágúst Ísleifur, væri fæddur (mynd kemur von bráðar). Og vorum við mæðgur afar kátar yfir fréttinni og óskum við þeim hjónum í Horsens innilega til hamingju!
Athugasemdir
Hæ frænka
Gaman að lesa bloggið þitt og fá aðeins smá innsýn í líf krakkanna í útlöndum. Til hamingju með barnabarn nr. 2 hann Ágúst Ísleif ;-)
Góða ferð frænka og bið að heilsa Hallveigu.
Sigga
Sigga frænkan (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 10:50
Já aldeilis vorum vid duglegar í labbinu, hlaupum á eftir sporvagninum, og fara á sýningar - thad var sannarlega gaman ad hafa mommu sina i heimsokn :)
Takk fyrir komuna, og eg hlakka til naestu heimsoknar! ...og Johan bidur kaerlega ad heilsa, Hanna og hann fannst svo gaman ad fa okkur i heimsokn!
Knusiknus
Hallveig (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 18:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.